Sjóvá styrkir malavíska akademíu á Rey Cup 2024
Malavísk ungmenni frá knattspyrnuakademíunni Ascent Soccer í Suðaustur-Afríku keppa á fótboltamótinu Rey Cup um helgina. Það er ánægjulegt að taka þátt í að láta draum þessara ungu afrísku knattspyrnuiðkenda um að ferðast erlendis á fótboltamót verða að veruleika en Sjóvá er einn af íslenskum styrktaraðilum ferðarinnar.
Ekki taka skjáhættuna
Sjóvá og Samgöngustofa taka höndum saman og snúast gegn hættulegri notkun farsíma og annarra snjalltækja undir stýri undir yfirskriftinni Ekki taka skjáhættuna. Herferðin sýnir okkur fáránleika þess sem við gerum í raun og veru þegar við notum símann undir stýri og hvetur okkur til að setja tækin á akstursstillingu á meðan við keyrum.
Sjóvá hækkar um flokk í UFS sjálfbærnimati Reitunar
Reitun gaf nýlega út UFS sjálfbærnimat á Sjóvá sem fékk einkunnina B1 og 80 stig af 100 mögulegum sem telst góð einkunn. Félagið hækkar um tvö stig milli ára og fer upp um flokk úr B2 í B1. Meðaltal íslenska markaðarins stendur nú í 71 stigi af 100 mögulegum. Sjóvá mælist yfir meðaltali í öllum flokkum (umhverfisþættir, félagsþættir og stjórnarhættir) í samanburði við önnur félög sem metin hafa verið.
Hvers vegna greiða fyrirtæki út arð?
Um arðgreiðslur gilda skýr lög. Eftirlitsskyld fjármálafyrirtæki, eins og t.d. tryggingafélög, mega aðeins greiða út arð samkvæmt samþykktum ársreikningi síðasta reikningsárs og ef það dregur ekki úr rekstrarhæfi félagsins. Þá má arðgreiðsla heldur ekki hafa áhrif á getu félagsins til að mæta áföllum í rekstri. Gögnum sem staðfesta að þessi skilyrði séu uppfellt er reglulega skilað inn til Fjármálaeftirlitsins.
Hvað eru endurtryggingar?
Vátryggingar eru í eðli sínu áhættusamur rekstur, enda er hlutverk tryggingafélaga að bæta tjón viðskiptavina og erfitt að sjá fyrir hvenær tjón verður og þá hversu stór. Tryggingafélög reyna því eftir fremsta megni að draga úr sveiflum og áhættu í rekstri. Það er m.a. gert með því að kaupa svokallaðar endurtryggingar af stærri erlendum tryggingafélögum sem sérhæfa sig í að „tryggja tryggingafélög“.
Hvað er samsett hlutfall tryggingafélaga?
Samsett hlutfall er leið til að sýna í fljótu bragði hvernig rekstur vátryggingahluta tryggingafélags gengur. Í mjög einföldu máli er þetta hlutfall iðgjalda annars vegar og útgjalda vegna vátrygginga hins vegar. Markmiðið er að á hverju ári standi iðgjöld undir tjónagreiðslum og öðrum kostnaði félagsins.
Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 2. ársfjórðungs 2024

13 m.kr. tap og samsett hlutfall 99,4% á fyrstu sex mánuðum ársins

Annar ársfjórðungur 2024

  • Tap af vátryggingasamningum fyrir skatta 150 m.kr. (2F 2023: 495 m.kr. hagnaður)
  • Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 317 m.kr. (2F 2023: 415 m.kr. tap)
  • Tap tímabilsins 434 m.kr. (2F 2023: 69 m.kr. tap)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 0,3% (2F 2023: -0,2%)
  • Samsett hlutfall 101,8% (2F 2023: 93,6%)

Fyrstu sex mánuðir ársins 2024 og horfur

  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 92 m.kr. (6M 2023: 401 m.kr.)
  • Hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta 46 m.kr. (6M 2023: 397 m.kr.)
  • Tap tímabilsins 13 m.kr. (6M 2023: 566 m.kr. hagnaður)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 1,5% (6M 2023: 1,4%)
  • Samsett hlutfall 99,4% (6M 2023: 97,3%)
  • Horfur fyrir árið 2024 eru óbreyttar og gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum verði um 1.100-1.600 m.kr. og samsett hlutfall 95-97%
  • Horfur til næstu 12 mánaða eru óbreyttar og gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum verði um 1.100-1.600 m.kr. og samsett hlutfall 95-97%

Hermann Björnsson, forstjóri:

Tap Sjóvár á öðrum ársfjórðungi nam 434 m.kr. og samsett hlutfall var 101,8%. Afkoma fjárfestinga fyrir fjármagnsliði var 61 m.kr. og tap af vátryggingasamningum var 150 m.kr.

Almennt séð var tjónaþróun hagfelld á fjórðungnum og betri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Hins vegar hentu fjórir stórir brunar viðskiptavini okkar á fjórðungnum. Eðli málsins samkvæmt hafa tjón sem þessi mikil áhrif á afkomu þess fjórðungs sem þau lenda á en undirliggjandi rekstur er mjög sterkur sem mildar áhrifin að miklu leyti. Áhrif brunatjóna á samsett hlutfall á fjórðungnum nam 10 prósentustigum.

Afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir fjármagnsliði var 61 m.kr. sem er undir væntingum en ásættanlegt í ljósi markaðsaðstæðna þar sem innlendir eignamarkaðir hafa verið afleitir síðustu misseri. Allir eignaflokkar, að undanskildum skráðum hlutabréfum, skiluðu jákvæðri afkomu á fjórðungnum. Ávöxtun skráðra hlutabréfa var -3,6%, ríkisskuldabréfa 1,4%, annarra skuldabréfa 2,1% og safnsins alls 0,3%. Í lok annars fjórðungs nam stærð eignasafnsins 56,6 milljörðum kr.

Hagnaður Sjóvár fyrir skatta á fyrstu 6 mánuðum ársins nam 176 m.kr. Þar af nam hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 92 m.kr. og samsett hlutfall 99,4%. Þá var hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir fjármagnsliði og skatta 764 m.kr.

Mikið var um að vera á nýliðnum ársfjórðungi og margar ánægjulegar fréttir af starfseminni.

Í ár fagnar vildarþjónusta Sjóvár, Stofn, 30 ára afmæli og eru því 30 ár liðin frá því að við hófum að endurgreiða tjónlausum Stofnfélögum hluta þeirra iðgjalda árlega. Heildarendurgreiðslur til viðskiptavina í Stofni á þessum 30 árum nema rúmlega 10 milljörðum króna. Stofn er fjölmennasta vildarkerfi á íslenskum tryggingamarkaði og eru fjölskyldur í Stofni nú 42.700.  

Sem fyrr er Sjóvá fyrsta val á tryggingamarkaði og með tryggustu viðskiptavinina skv. könnun Prósents í apríl 2024. Þá er Sjóvá sjöunda árið í röð í 10 efstu sætum meðal stærri fyrirtækja í könnun VR um Fyrirtæki ársins 2024. Sjóvá hlaut því nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki 2024 ásamt því að fá Fræðsluviðurkenningu VR, sem er ný viðurkenning og veitt einu fyrirtæki í hverjum stærðarflokki sem þykir skara fram úr í starfsþróun og eflingu símenntunar.

Við erum afar ánægð með þessar góðu niðurstöður og þakklát fyrir að starfsfólk okkar sé jafn ánægt og stolt af því að starfa hjá Sjóvá eins og raun ber vitni. Öflugur mannauður er grunnurinn að góðri þjónustu og ánægju viðskiptavina.

Þá gaf Reitun nýlega út UFS sjálfbærnimat á Sjóvá sem fékk einkunnina B1 og 80 stig af 100 mögulegum sem telst góð einkunn. Félagið hækkar um tvö stig milli ára og fer upp um flokk úr B2 í B1. Matið gerir grein fyrir hvernig fyrirtæki standa frammi fyrir áhættum sem snúa að umhverfis- og félagsþáttum og stjórnarháttum.

Þegar horfur fyrir 2024 eru metnar verður að taka tillit til stórra brunatjóna sem hent hafa okkar viðskiptavini það sem af er ári. Okkar áætlanir gera ráð fyrir stórum tjónum sem nú hafa raungerst á fyrstu 6 mánuðum ársins. Einnig verður að líta til þess að undirliggjandi rekstur á fyrstu 6 mánuðum er afar sterkur og umfram væntingar. Horfur fyrir árið 2024 eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum því enn áætluð 1.100-1.600 m.kr. og samsett hlutfall á bilinu 95-97%. Að óbreyttu má reikna með að niðurstaðan verði í neðri mörkum í afkomu og efri mörkum í samsettu hlutfalli. Horfur til næstu 12 mánaða eru einnig óbreyttar og gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum verði um 1.100-1.600 m.kr. og samsett hlutfall 95-97%. Gangi þessar horfur eftir verður að telja þá niðurstöðu mjög vel við unandi.

Kynningarfundur 17. júlí kl. 16:15

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 17. júlí kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-2f-2024/.

Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Fjárhagsdagatal

3. ársfjórðungur 2024 21. október 2024
Ársuppgjör 2024 6. febrúar 2025
Aðalfundur 2025 13. mars 2025

Nánari upplýsingar
Meðfylgjandi er fréttatilkynning, samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar og fjárfestakynning Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna annars ársfjórðungs 2024.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða fjarfestar@sjova.is

Viðhengi


Sjóvá: Uppgjör annars ársfjórðungs 2024 verður birt 17. júlí – kynningarfundur sama dag kl. 16:15

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir uppgjör annars ársfjórðungs 2024 eftir lokun markaða miðvikudaginn 17. júlí nk.

Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 17. júlí nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-2f-2024/.

Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson, í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is


Sjóvá – Árshlutauppgjör 1. ársfjórðungs 2024

Helstu niðurstöður úr árshlutauppgjöri Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna fyrsta ársfjórðungs 2024:

Fyrsti ársfjórðungur 2024 og horfur

  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 242 m.kr. (1F 2023: 95 m.kr. tap)
  • Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 363 m.kr. (1F 2023: 812 m.kr.)
  • Hagnaður tímabilsins 421 m.kr. (1F 2023: 636 m.kr.)
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 1,2% (1F 2023: 1,6%)
  • Samsett hlutfall 97,0% (1F 2023: 101,3%)
  • Horfur fyrir árið 2024 eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2024 og til næstu 12 mánaða áætluð 1.100-1.600 m.kr. og samsett hlutfall 95-97%.

Hermann Björnsson, forstjóri:

Afkoma Sjóvár á fyrsta ársfjórðungi nam 421 m.kr. og samsett hlutfall var 97%. Afkoma fjárfestinga fyrir fjármagnsliði var 703 m.kr. og afkoma af vátryggingasamningum var 242 m.kr.

Tekjur af vátryggingasamningum jukust um 10,1% samanborið við sama tímabil í fyrra og er tekjuvöxturinn jafnt á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði.

Almennt séð var tjónaþróun í takt við áætlanir og umsvif í þjóðfélaginu þar sem tíðarfar var nokkuð betra en á 1F 2023. Eitt stórt brunatjón kom inn í okkar bækur á fjórðungnum. Í áætlunum er gert ráð fyrir tjónum af þessari stærðargráðu en eðli máls samkvæmt hafa þau afgerandi áhrif í þeim fjórðungi sem þau falla til.

Afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir fjármagnsliði og skatta var 703 m.kr. sem er ásættanlegt í ljósi markaðsaðstæðna en miklar sveiflur hafa verið á eignamörkuðum það sem af er ári. Ríkisskuldabréf og önnur skuldabréf skiluðu jákvæðri ávöxtun á fjórðungum en skráð – og óskráð hlutabréf neikvæðri ávöxtun. Ávöxtun skráðra hlutabréfa var -1,1%, ríkisskuldabréfa 2,6% og safnsins alls 1,2%. Í lok fyrsta fjórðungs nam stærð eignasafnsins 56,6 milljörðum kr.

Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum var samþykkt á aðalfundi 7. mars 2024 og hefur nú samþykki fengist frá Fjármálaeftirlitinu. Endurkaup félagsins munu sem fyrr taka mið af gjaldþolsviðmiðum stjórnar.

Í byrjun apríl voru 10 ár frá skráningu Sjóvár á aðallista kauphallarinnar. Frá skráningu hefur Sjóvá orðið að stærsta vátryggingafélagi landsins, skilað jákvæðri afkomu af vátryggingasamningum á hverju ári og ánægja viðskiptavina hefur aukist en Sjóvá hefur verið efst fjármálafyrirtækja í Íslensku ánægjuvoginni síðastliðin 7 ár. Þá hefur félagið reynst afar arðbært fyrir eigendur með hagfelldri þróun hlutabréfaverðs félagsins ásamt reglulegum greiðslum til hluthafa.

Þá er gaman að segja frá því að í ár eru 25 ár síðan samstarf Sjóvár og Landsbjargar hófst. Sjóvá hefur átt í afar farsælu samstarfi við félagið í tengslum við ýmis forvarnarverkefni, öryggismál og tryggingar. Þá styrkti Sjóvá Landsbjörg árið 2022 um 142,5 m.kr. til kaupa á þremur skipum sem hafa nú öll verið tekin í notkun. Við erum afar stolt af því að hafa stutt við bakið á þessu öfluga félagi eins lengi og raun ber vitni og hlökkum til að halda þessu góða samstarfi áfram.

Horfur fyrir árið 2024 eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2024 og til næstu 12 mánaða áætluð 1.100-1.600 m.kr. og samsett hlutfall 95-97%. Þá eru áhrif áfallinna vaxta (vöxtunar) vátryggingaskuldar í samræmi við væntingar á fjórðungnum og má ætla að áhrifin verði neikvæð um 1.600-1.800 m.kr. á árinu 2024. Ekki verða birtar horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu nemi 9,0% á ári til lengri tíma miðað við núverandi vaxtastig og fjárfestingastefnu. Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingastarfsemi nema þær verði raktar til breytinga á óskráðum eignum eða verulegra breytinga á fjárfestingastefnu.

Kynningarfundur 19. apríl kl. 16:15

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 19. apríl kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-1f-2024/.

Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Fjárhagsdagatal

2. ársfjórðungur 2024 17. júlí 2024
3. ársfjórðungur 2024 21. október 2024
Ársuppgjör 2024 6. febrúar 2025
Aðalfundur 2025 13. mars 2025

Nánari upplýsingar
Meðfylgjandi er fréttatilkynning, samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar og fjárfestakynning Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna fyrsta ársfjórðungs 2024.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða fjarfestar@sjova.is.


Viðhengi


Sjóvá: Uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2024 verður birt 19. apríl – kynningarfundur sama dag kl. 16:15

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2024 eftir lokun markaða föstudaginn 19. apríl nk.

Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og í vefstreymi
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 19. apríl nk. kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni  https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-1f-2024/ .
Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson, í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is


Sjóvá: Skýrsla um gjaldþol og fjárhagslega stöðu 2023 (SFCR)

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hefur gefið út skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu fyrir árið 2023. Skýrslan er gefin út í samræmi við kröfur laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016.

Skýrslunni er m.a. ætlað að veita almenningi og markaðsaðilum upplýsingar um fjárhagslegan styrk, áhættu, eignir og skuldir félagsins og talnaupplýsingar.

Skýrsluna má finna á eftirfarandi síðu:

https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/fjarhagsupplysingar/2023/


Lækkun hlutafjár í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.

Skráð hefur verið í Fyrirtækjaskrá hlutafjárlækkun í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. að nafnverði kr. 21.803.205, en á aðalfundi félagsins þann 7. mars sl. var samþykkt eftirfarandi tillaga stjórnar um að lækka hlutafé félagsins:

„Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. haldinn 7. mars 2024 samþykkir að hlutafé félagsins verði, lækkað um kr. 21.803.205 að nafnverði til jöfnunar eigin hluta á grundvelli ákvæða laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Hlutafé félagsins lækkar þar með úr kr. 1.178.393.205 að nafnverði í kr. 1.156.590.000 að nafnverði.“ 

Óskað hefur verið eftir því við Nasdaq verðbréfamiðstöð um að lækka skráð hlutafé til samræmis, fyrsti viðskiptadagur eftir lækkunina mun vera 2. apríl 2024. Fyrir hlutafjárlækkunina á Sjóvá 21.803.205 eigin hluti eða sem nemur 1,85% af útgefnum hlutum í félaginu. Eftir hlutafjárlækkunina á Sjóvá enga eigin hluti.

Niðurfærslan hefur ekki áhrif á hlutafé í eigu annarra hluthafa en félagsins sjálfs.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is


Afþreying, farsímar og fylgihlutir
Vodafone býður viðskiptavinum í Stofni frábær tilboð á spennandi afþreyingarpökkum ásamt afslætti af símum aukahlutum og hlífum. 50% afsláttur í 6 mánuði af völdum afþreyingarpökkum, Stöð 2+ eða Sport í 1 mánuð til reynslu. 20% af hulstrum, 10% af aukahlutum, 5% af símtækjum.
Eldvarnir og öryggi
Eldvarnamiðstöðin veitir viðskiptavinum okkar í Stofni 20% afslátt af reykskynjurum, slökkvitækjum, eldvarnateppum, sjúkratöskum og fleiri öryggisvörum.
Opið hús hjá Sjóvá Egilsstöðum
Föstudaginn 8. júní kl. 10:00 - 14:00 verður opið hús í útibúi okkar á Egilsstöðum. Viðskiptavinir eru boðnir sérstaklega velkomnir þá að þiggja veitingar og glaðning. Við minnum á að það er líka alltaf heitt á könnunni hjá okkur á opnunartíma útibúsins, frá kl. 9:00 - 16:00 alla virka daga.
Hjólað í hóp
Fimmtudaginn 31. maí kl. 18:00-20:00 verður haldið hjólreiðanámskeið fyrir þá sem vilja læra að hjóla í hóp. Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir hvernig bendingar og ýmis önnur samskipti eru notuð þegar margir hjóla saman. Námskeiðið getur til dæmis nýst þeim vel sem ætla að taka þátt í hjólreiðakeppni í sumar.
Horft fram á veginn
Miðvikudaginn 23. maí 2018 klukkan 8:30-9:45 höldum við morgunfund um öryggi og forvarnir hjá bílaleigum. Á fundinum verður farið yfir hvað bílaleigur eru að gera í öryggismálum og hverju þarf að huga betur að í forvarnastarfinu.
Tryggingar og öryggi hjólreiðafólks
Hjólreiðar verða sífellt vinsælli hér á landi, eins og við sjáum bæði úti í umferðinni og eins á þeim mikla fjölda sem tekur þátt í hjólreiðakeppnum um allt land. Það er því mikilvægt að þeir sem stunda hjólreiðar kynni sér vel hvernig þeir geta tryggt sig og eins hvað þeir geta gert til að tryggja öryggi sitt og annarra í keppnum.
Morgunfundur um tryggingar og öryggi hjólreiðafólks
Fimmtudaginn 3. maí kl. 8:30-9:40 heldur Sjóvá morgunfund um tryggingar og öryggi hjólreiðafólks. Á fundinum verður farið yfir hvernig hjólreiðafólk tryggir sig og búnað sinn og að hverju þarf að huga þegar tekið er þátt í hjólreiðakeppnum. Fundurinn fer fram í húsnæði Sjóvár, Kringlunni 5 og eru allir velkomnir.