
Miðvikudaginn 12. febrúar opnum við útibú á Höfn í Hornafirði.
Skrifstofan verður á 2. hæð í verslunarmiðstöðinni Miðbæ við Litlubrú 1 og verður opin mánudag til föstudag frá 11:00-16:00.
Sjóvá hefur alltaf lagt sig fram við að veita framúrskarandi og aðgengilega þjónustu á landsbyggðinni. Við höfum áður haft þjónustu á Höfn í Hornafirði og erum full tilhlökkunar að halda áfram langri sögu Sjóvá á svæðinu.
Í vetur höfum við gert tilraunir með svokallað "pop-up" fyrirkomulag, þar sem starfsmenn mæta til Hafnar dag og dag. Það þótti takast mjög vel, og viðtökurnar gáfu ekki ástæðu til annars en að opna skriftofu með varanlegri og fyrirsjáanlegri fyrirkomulagi.
Þess vegna opnum við Höfn miðvikudaginn 12. febrúar.
Útibúanet Sjóvá nær því til allra landshorna en lengi hefur verið vöntun á útibúi tryggingafélags á Höfn.
Við tökum vel á móti ykkur.